Unglingurinn Evan Hill, í Nýja Sjálandi, var með svo svakalega stórar framtennur að hann gat ekki lokað munninum og hvað þá brosað því brosi sem hann dreymdi um. Hann var lagður í einelti og kallaður kanínan í skólanum en foreldrar hans höfðu ekki efni á því að láta tannlækni laga tennur hans.
Það var sett af stað söfnun fyrir drenginn og meira en nóg safnaðist fyrir Evan til að láta laga tennur sínar. Hann fékk teina hjá tannlækninum Ronald Sluiter sem færði tennurnar um hvorki meira né minna en 15 millimetra. Nú getur ungi maðurinn brosað sínu breiðasta og er fullur sjálfstrausts.
Sjá einnig: Sjáðu hvað teinar gera við tennurnar þínar!
Barbara, móðir Evan, sagði í viðtali við Newshub:„Ég veit ekki hvar við værum í dag ef við hefðum ekki notið gjafmildi samlanda okkar. Við hefðum örugglega endað með því að veðsetja húsið okkar en svo var þessari söfnun hrundið af stað og þetta hefur breytt öllu.“