Ég er alls ekki þekkt fyrir að vera mjög öflug í því að versla. Fyrir mér yrði líf mitt að minnsta kosti 5% hamingjuríkara ef ég gæti fengið einhvern til þess að sjá um allt sem við kemur verslunum það fyrir mig, það sem eftir er. Ekki misskilja mig, ég ELSKA að fá nýja hluti, hvort sem það eru föt, snyrtivörur, raftæki eða hvað sem það er. Ég er alltaf svo glöð með nýja hluti. Það er þessi verknaður AÐ FARA Í BÚÐIR sem vefst eitthvað fyrir mér…. Já ég er furðuleg!
Ástæðan fyrir því að ég er að segja ykkur frá þessu er að nú fara skólarnir að byrja og þá þarf að fara í hinar ýmsu verslanir til að undirbúa skólagöngu afkvæmanna og þessi tími árs er mörgum foreldrum mikill höfuðverkur. Mikil peningaútgjöld fylgja þessu gjarnan og við, þetta venjulega fólk, sem þarf að borga meirihluta launa sinna í reikninga í hverjum mánuði, finnur alveg fyrir þessu.
Ég fór galvösk í smá verslunarferð með dótturinni í vikunni, staðráðin í því að vera þolinmóð og týna ekki gleðinni á milli rekkanna í búðinni og enda þessa ferð ekki á því að vera orðin snarvitlaus, með pirrað barn og þá hugsun í kollinum að ég væri búin að eyða ALLTOF miklum peningum.
Ég fór í nokkrar búðir og skoðaði boli, peysur og buxur og lét stelpuna mína máta heila glás. Hún hafði verið mjög spennt að fá að fara í verslunarleiðangur en var fljót að fá nóg af því að klæða sig í og úr til skiptis (kannski nokkuð lík mömmunni sinni?)
Við ákváðum að kíkja í Holtagarða í stóru Hagkaupsverslunina þar sem allt fæst og þá varð litla sparsama mamman ofsalega glöð. Þvílík gleði.
Það er semsagt Outlet í Hagkaupum í Holtagörðum. Já ég sagði það! Ég veit að margir eru að tæma vasana þessa dagana vegna allskyns útgjalda og þess vegna fannst mér ég verða að deila þessu með ykkur.
Þarna eru föt, skór og fleira og ekkert kostar meira en 8000
Stígvél, strigaskór, kuldaskór og inniskór á klink
Útigallar, hlífðarföt og hverskyns fatnaður fyrir börn á öllum aldri og fullorðna líka
Ég mæli eindregið með því að þið kíkið á þessi föt og trúið mér, ég er ekki að fá borgað fyrir að segja frá þessu 🙂
Allt er mjög einfaldlega sett upp og verðin eru bara eftir litum
Það eru líka seld handklæði og fleiri vörur fyrir heimilið þarna á lítinn pening.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.