Það er aldeilis ekki tekið út með sældinni að vera á síðustu stigum meðgöngunnar. Þessar myndir sýna þau vandamál sem geta komið upp hjá konum sem eru við það að springa úr óléttu. Í mörgum þessara tilvika væri gott að hafa góðan og sérlega almennilegan aðstoðarmann eða konu.
Sjá einnig: Hvað finnst honum um ólétta líkamann þinn í raun?
Það er bara virkilega ekki furða að sumar konur sjái sig knúnar að tjá umheiminum þrungan sem getur stafað af því að vera ólétt.
1. Guð minn almáttugur… nei! Það getur ekki verið að þetta sé að fara að koma fyrir mig!
2. Ó, nei… versta martröð mín varð að veruleika. Leggðu það á minnið… aldrei halda á neinu sem þú mátt ekki missa!
3. Farið frá! Það er eins gott að enginn verði á vegi mínum á leið minni á klóið!
Sjá einnig: Óléttan fest á filmu og pabbinn syngur lag – Myndband
4. Já, þetta getur gerst… og þetta viljum við ekki að gerist…
5. Djö.. hvað þú ert pirrandi… það er alveg óþolandi…
Sjá einnig: Fáránlega fyndið: Óléttar taka sporið (í bókstaflegri merkingu)
6. Bara að minnsta kosti 7 mánuðir þar til ég má drekka þig… elsku vín…
7. Sofðu í sófanum framvegis… Við viljum sko alls ekki að þú farir að “pota í hausinn” á barninu Jón…
8. Það er geimvera inn í mér… eða gremlings…
9. Þú getur gleymt því að ganga í Converse skónum þínum í nokkra mánuði.. nema einhver nenni að reima þá á þig…
10. Sagði einhver afvelta belja…? Stundum er það bara þannig.
11. …og svo getur maður gleymt því hvernig hún lítur út, svo það er bara fríhendisaðferðin… blindandi!
12. Að svo mörgu leyti tifandi tímasprengja!
13. Puttarnir eru eins og vel þrýstnar SS bjúgur og eini skóbúnaðurinn eru pokar úr H&M. Sönn saga!
14. Það verður bara aldrei neitt eins og það var… og eina sem getur læknað mig er súkkulaði og bragðarefur!
15. Það er eins gott að enginn taki eftir því að mér er farið að vaxa sportrönd eins og á stálpuðum unglingspilti…
16. …þú veist… hver skírir barnið sitt Hilarius eða Satan…?!
17. Ég hef þó afsökun… en hver er þín…?
18. “Guð minn góður… þú ert alveg að springa… Ert þú ekki að fara að eiga…?” Uuuh.. nei ég á tæpa þrjá mánuði eftir!
19. Hahahaha! Ég get geymt skálina á bumbunni….
20. Orð að sönnu!
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.