Efst á óskalista þeirra vandlátu hlýtur hágæðahönnun Alexanders Wang; nætursvartir grjónapúðar og flauelsklæddur vínskápur að tróna þetta misserið. Línan kemur á Bandaríkjamarkað í febrúar og á Evrópumarkað í apríl en um algera draumahönnun er að ræða.
.
.
Alexander hannaði línuna í samstarfi við ítalska hönnunarfyrirtækið Poltrona Frau, en um afar sérstæða og freistandi línu er að ræða. Leðurklæddir grjónastólar sem hvíla á bronsleitum fótum líkjast í raun engu sambærilegu sem komið hefur á markað áður, en sjálfur barskápurinn sem ætlaður er undir vínföng, er flauelsklæddur hið innra og er bikasvartur ásýndar.
.
.
Sjálfur segir Wang að gamlir dagdraumar hafi ráðið för við hönnun hægindastólanna:
“Ég hef alltaf verið svo skotinn í þeirri hugmynd að eiga grjónapúða í kjallaranum – sú hugmynd að taka unggæðingslegan dagdraum og umbreyta hugmyndinni í hágæða hönnun freistaði mín einfaldlega.”
.
.
Um þann heiður að mega hanna fyrir ítalska hönnunarfyrirtækið segir Wang:
Poltrona Frau státar af svo ríkri hefð í húsgagnahönnun, þekkingu á þægindum og á sér svo langa og magnþrungna sögu í hönnunarheiminum. Handverkið sem hönnunarfyrirtækið státar af er svo verðmætt og því er ég stoltur af samstarfinu.
Grjónapúðar Wang koma á Bandaríkjamarkað í febrúar en einnig verður hægt að festa kaup á linunni víðsvegar um Evrópu í sérvöldum Wang verslunum og að sjálfsögðu verður línan einnig fáanleg í verslunum Poltrona Frau. Dásamleg hönnun sem gefur smækkaða mynd af þeim húsgagnalínum sem verða ráðandi í ár.
Hér má svo til gamans bera fylgihlutalínu Wang augum, sem mun vera númer sex í röðinni og er æði minimalísk.
Tengdar greinar:
Ótrúlega töff húsgögn! – Font Furniture – Myndir
Kremuð þakíbúð í Berlín
The Skull: Nætursvartur hægindaskúlptúr með flauelsáklæði
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.