Þetta er alveg virkilega ljúffengur kokteill. Eiginlega alveg hættulega góður. Dálítið varasamur sko. Að minnsta kosti þegar kokteilþambarar eiga í hlut. Hann rennur stundum niður í dálítið óhóflegu magni.
Æ, þetta er einn af þessum drykkjum sem eiginlega finnst ekki áfengisbragð af. Allt í einu er maður bara á fimmta glasi. Mögulega tíunda. Hver er að telja?
Í epla- og engiferkokteilinn þarf:
Vodka
Lime
Eplasafa
Trönuberjasafa
Engiferöl
Glasið er fyllt af klökum og hálft lime kreist út í. Dágóð lögg af vodka fer í glasið þar á eftir. Síðan skvetta af bæði epla- og trönuberjasafa. Að lokum er svo fyllt upp í með engiferöli.
Ég fyllti glasið helst til mikið og þurfti að bjarga málunum. Ég læt ekki áfengan dropa fara til spillis, ó nei – slíkt mun seint spyrjast út um mig.
Algjör dásemd og heldur betur nauðsynlegur sjúss eftir langa viku.
Tengdar greinar:
Ferskur og æðisgenginn kokteill með granateplum
Jarðaberja ævintýri – Æðislegur kokteill
Mangó og ferskjukokteill – Uppskrift
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.