Kim Kardashian var á flandri um New York borg í vikunni. Hún var í óða önn að stilla sér upp í myndatöku fyrir framan Yeezy-skilti þegar æstur aðdáandi vildi vera með á myndinni. En Yeezy er meðal annars gælunafn Kanye West og nafnið á fata- og skólínu hans, þannig að myndin hefur sennilega verið ætluð honum og Kim talið óþarfa að hafa sótsvartan almúgann inni á henni.
Á endanum skarst lífvörður frú Kardashian í leikinn, svo hún fengi nú af sér sómasamlega mynd.
Tengdar greinar:
Kim & Kanye á Grammys: Svo sæt að sólin er feimin
Kim Kardashian hæðist snilldarlega að eigin sjálfsdýrkun
Viðbrögð eldra fólks við nektarmyndinni af Kim Kardashian
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.