Fylltar beikondöðlur

Þessar dúllur eiga vel við í hvaða veislu sem er! Þær koma frá henni Berglindi á Gotteri.is

 

Fylltar beikondöðlur

  • Um það bil 25 döðlur
  • 5 msk rjómaostur frá „Gott í matinn“
  • 2 msk hnetusmjör
  • 1 pakki beikon

Döðlur

  1. Skerið smá rauf í döðlurnar.
  2. Blandið saman rjómaosti og hnetusmjöri, setjið í zip-lock poka og klippið lítið gat á endann. Sprautið fyllingu í hverja döðlu.
  3. Klippið beikonið í tvennt og vefjið því síðan utan um döðlurnar. Mér finnst gott að miða við að minnsta kosti 1 ½ til 2 hringi af beikoni á hverja.
  4. Hitið í ofni við 200°C þar til beikonið fer að dökkna.

 

SHARE