Fyrrum körfuboltakappinn Lamar Odom átti viðburðarríkt ár 2015 en það endaði með því að hann féll í dá eftir að hann tók of stóran skammt af eiturlyfjum. Atvikið átti sér stað á vændishúsi í Las Vegas í október. Lamar er kominn aftur til meðvitundar en ljóst er að hann mun líklegast aldrei verða samur.
Sjá einnig: Lamar Odom gengur í fyrsta skipti eftir vændishúsaatvikið
Fyrrverandi eiginkona Lamar, Khloe Kardashian, flaug börnin hans til Los Angeles yfir hátíðirnar þar sem hann er í endurhæfingu á spítalanum Cedar-Sinai Medical Center.
Lamar á 2 börn þau Lamar Odom Jr, 13 ára og Destiny, 17 ára með æskuástinni sinni Lizu Morales.
Sjá einnig: Khloe er óhuggandi: Lamar fannst meðvitundarlaus í vændishúsi
Lamar Odom Jr. birti mynd af sér, systur sinni og pabba sínum á Instagram en það er fyrsta myndin sem birst hefur á netinu af Lamar síðan í október.
Kristín Helga er óumdeilanlega mesti Kardashian aðdáandi Íslands og nærliggjandi landa. Hennar heitasta ósk er að vera vinkona Khloe Kardashian.
Hún hefur áhuga á öllu mögulegu og þar á meðal að lesa og skrifa um fræga fólkið í Hollywood.