
Tom Ball fær Golden Buzzer frá dómurunum eftir að hann söng lagið „The Sound of Silence“ eftir Simon & Garfunkel. Simon kallar hann barnabarn Susan Boyle. Hann er algjörlega geggjaður og ég fékk gæsahúð þegar hann fer í hækkunina, ja hérna hér.
Hann byrjar að syngja á ca. 3:00 ef þið viljið fara beint í lagið.

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.