Þessi dýrð er fengin af sælkerablogginu hennar Erlu Guðmunds. Þessa köku verða allir að prófa – enda er fátt sem toppar það þegar súkkulaði og piparmynta eru komin undir sömu sæng.
Sjá einnig: Súkkulaðikaka á þremur mínútum
Botnar
250 gr hveiti
250-300 gr sykur
125 gr brætt smjörlíki
125 ml nýmjólk
1/2 tsk salt
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1 tappi vanilludropar
4 msk kakó
2 egg
Sjá einnig: Unaðsleg kaka með hnetubotni og súkkulaðimús
- Þessu er öllu skellt í hrærivélina og hrært í 2 til 3 mínútur.
- Hægt að setja í hvaða form sem er, ég setti deigið í 2 hringlaga form. Þetta bakast svo í 20 – 25 min við 180°C.
Myntusmjörkrem
200-250 gr íslenskt smjör (við stofuhita)
4-5 dl flórsykur
4 msk kakó
2 eggjarauður
2 tappar piparmyntudropar
- Ég skreytti síðan með Piparmyntu Nóa kroppi til þess að fullkomna piparmyntubragðið.
Verði ykkur að góðu!
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.