Þetta er ekki plat. Pornhub, sem er ein af stærri klámsíðum a netinu, stendur nú fyrir stórundarlegri fjáröflun í samstarfi við Digital Playground. Ætlun þeirra er sú að safna nægu fjármagni til að senda klámmyndaleikara út í geim til að njóta kynlífs í algeru þyngdarleysi og taka upp á myndband.
Sjá einnig: KLÁM: 25 albestu gerðir kláms útskýrðar í þaula
Sexploration er vinnuheiti verkefnisins en yrði þannig alfyrsta kynlífsmyndbnandið sem yrði tekið upp fyrir utan segulsvið jarðar og framleiðslan myndi ekki bara kollvarpa klámiðnaðinum heldur yrði einnig rannsóknarverkefni sem tæki á því hvernig mannslíkaminn bregst við kynferðislegu áreiti úti í geimnum.
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.