Tíðni fæðuofnæmis hefur aukist hratt undanfarin ár. Astmi og ofnæmiskvef hefur hingað til verið algengasta vandamálið og hrjáir nú um 30-35% fólks einhvern hluta ævinnar. Nýlegar rannsóknir benda hins vegar til þess að fæðuofnæmi, sér í lagi á meðal nýfæddra barna, fari ört vaxandi eða um 50% síðan 1997. Fæðuofnæmi hrjáir 15 miljónir Bandaríkjamanna, þar á meðal 1 af hverju 13 börnum. Breytt mataræði og breyttur lífstíll núverandi kynslóða er talið eiga hlut að máli.
Í nýlegri rannsókn sem birt var í The Proceedings of the National Academy of Sciences er fjallað um ákveðna bakteríu tegund, Clostridium (1), sem er að finna í meltingarveginum okkar. Þessi baktería getur verið hættuleg ef hún offjölgar sér (2) en hún virðist vera nauðsynleg upp að vissu marki til að koma í veg fyrir myndun fæðuofnæma. Í raun má segja að Clostidia bakteríustofninn hafi varnandi áhrif á myndun fæðuofnæma með sinni sértæku verkun í meltingarveginum (3). Þessi verkun á sér stað með vikjun ónæmisfrumna sem koma í veg fyrir að ónæmisvakinn komist út í blóðrásina. Samkvæmt Dr. Nagler (4) eru Clostridia bakteríurnar í nánum samskiptum við slímhúð þarmanna og þar með einnig í nánum samskiptum við ónæmiskerfið okkar. Þessar bakteríur viðhalda heilbrigðu yfirborði þarma og þar með sjá til þess að ekkert fari þar í gegn sem getur framkallað óæskileg viðbrögð eins og ofnæmi.
Þessar rannsóknir eiga enn langt í land með að varpa ljósi á allan sannleikann. Vonast er til að þessar bakteríur verði fáanlegar til inntöku í náinni framtíð í formi góðra gerla eða probiotics (5).
Copyright @ Jörth 2008-2017
Birt með góðfúslegu leyfi Jörth
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.