
Rottur eru yfirleitt skítugar, viðbjóðslegar og bera með sér bakteríur og óþrifnað eða þannig eru þær allavega á myndum, nema kannski teiknimyndum Disney. Á þessum myndum eru þær hinsvegar bæði hreinar, krúttlegar og meira að segja ótrúlega kelnar.
Jessica Florence sem býr í Englandi fór árið 2007 að birta myndir af gæludýrununum sínum á Flickr og á sama tíma byrjaði Ellen Van Deelen sem býr í Holllandi að birta myndir af sínum gæludýrum á Redbubble. Myndirnar eru aftur núna vinsælar á netinu.
Dýrin hennar Jessicu; Bug, Duck og Worm
Dýrin hennar Ellen: Moppy, Witje og Rosie.
Aðrir notendur fóru einnig að birta myndir af sínum dýrum og eru síðustu 4 myndirnar í safninu dæmi um það.
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.