Þegar Jeremy og Rachelle settust niður til að plana brúðkaupið sitt varð þeim ljóst hversu mikill kostnaður yrði við þetta allt saman. Þau voru að hugsa um þetta allt þegar Rachelle sagði allt í einu: „Af hverju giftum við okkur ekki á Íslandi í staðinn?“
Nokkrum vikum síðan voru Jeremy og Rachelle komin í húsbíl á ferð um Ísland. Þau fóru á jökla, undir fossa, út í móa, á hestbak og í heita hveri. Þau leituðu að rétta staðnum til að gifta sig á.
Sjá einnig: 10 ástæður fyrir því að það er gott að gifta sig
Dag einn fundu þau svo staðinn sinn. Þau giftu sig þar sem einu sinni hafði staðið kirkja sem stóð af sér eldgos en hraunið fór sitthvorum megin við kirkjuna og hún stóð eftir heil (í Ögmundarhrauni?). Þau fóru með heit til hvors annars, skiptust á hringum, alein, með náttúruna eina sem vitni. Þau kysstust og föðmuðust og hoppuðu svo upp í bílinn sinn og héldu ævintýri sínu áfram.
Þau borguðu flug fyrir ljósmyndarann sinn, Troy og hann tók myndir af þeim í lok ferðarinnar.
Sjá einnig: Kom ekkert annað til greina en að gifta sig á Íslandi – Myndband
Sjá einnig: Þau voru ekki sammála um hvar þau ættu að gifta sig, þannig að þau gerðu þetta í staðinn
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.