Ríflega 11.000 manns tóku þátt í Druslugöngunni í dag, laugardag, sem var gengin að fjórða sinni í Reykjavík og víðar um landið. Var mikið margmenni komið saman á Austurvelli til að hlýða á ræðuhöld og tónlistaratriði, en slagorð göngunnar var „Færum skömmina þangað sem hún á heima“ en markmið göngunnar var einmitt það; að sýna þolendum kynferðisofbeldis stuðning í verki gegn gerendum.
Gengið var frá Hallgrímskirkju klukkan tvö, þá niður Skólavörðustíg, Bankastræti og var staðar numið á Austurvelli þar sem við tók formleg dagskrá. Einnig var gengið til góðs á Ísafirði, Vestmannaeyjum og Akureyri en þáttakendur í göngunni voru duglegir að smella af myndum í rauntíma og deila á samskiptamiðlum.
Hér má sjá nokkur opinber sýnishorn af Instagram sem sýna ljósan fjölbreytileika mannlífsins sem þáttakendur deildu á samskiptamiðlinum í Druslugöngunni í gær – ýmist undir merkjunum #drusla eða #drusluganga en myndirnar gefa innsýn í fjölbreytileika Druslugöngunnar í ár víðs vegar um landið.
Klara Egilson er íslenskur blaðamaður búsettur í Osló. Hún hefur gengt ritstörfum frá unga aldri og gaf út sína fyrstu smásögu sex ára að aldri: “Kartaflan sem fann alltaf vitlausa lykt” en hefur skrifað allar götur síðan og er ekki ókunn íslenskum fjölmiðlum. Hún er elsk á orð, fagra muni og umfram allt; fjölbreytileika mannlífsins. Klara gegnir í dag stöðu aðstoðarritstjóra HÚN.IS og tekur á ýmsu í umfjöllunum sínum.