Allir sem tilnefndir eru til Óskarsverðlauna fá með sér heim gjafapoka sem er ekki af verri endanum, flugmiðar, dekur, snyrtivörur, einkaþjálfun og þannig mætti endalaust telja áfram.
Í ár þótti innihald pokans alls ekki vera hefðbundið en í honum var til dæmis:
- Bókin Your Guide to Happy Endings and New Beginnings eftir Leeza Gibbons.
- 6 smokkar frá Naked Brand
- Hlynsýróp frá Rouge Maple Gourmet Products
- Borðbúnaður frá Slimware en hann stjórnar skammtastærðunum sem þú átt að fá
- Vampíru andlitslyfting, en þá er efni úr blóði viðkomandi sprautað í hrukkur manneskjunnar og sléttir úr þeim
- Miðar í sirkus
- Hárteygjur sem líka er hægt að nota sem armband
- Gluggahreinsir
Þetta er bara brot af því sem stjörnurnar en að auki fá þau íþróttapeysu með logo-i verðlaunahátíðarinnar á.