Goldie Hawn virðist vera með æskubrunninn í vasanum, hún lítur alltaf út mörgum árum yngri en hún er í raun. Þessa dagana er hún í fríi á St. Tropez og náðust myndir af henni á ströndinni, þar sem hún bar af. Goldie er 69 ára gömul og sambýlismaður hennar, leikarinn Kurt Russel, er 64 ára. Eiga þau saman soninn Wyatt Russel sem er 29 ára. Fyrir á leikkonan dótturina Kate Hudson og soninn Oliver Hudson, en merkilegt þykir hversu líkar þær mæðgur eru.
Kurt Russell er sambýlismaður Goldie til 32 ára.
Sjá einnig: Kate Hudson: Það eru engin leyndarmál til að halda sér í formi
Í góðu formi: Goldie þakkar útliti sínu heilbrigðum lífstíl.
Ber af á ströndinni: Ekki er að sjá að um 69 ára gamla konu sé að ræða.
Sjá einnig: Goldie HawnÞau eru alveg eins og foreldrar sínir
Heimildir: Dailymail
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.