Þessar dýrinds kjötbollur koma frá uppáhalds sælkeranum mínum, henni Tinnu Björgu. Ég mæli eindregið með því að þú bæði kíkir á bloggið hennar og fylgir henni á Facebook.
Sjá einnig: Asískar kjötbollur
Kryddaðar kjötbollur í rjómatómatsósu
Kjötbollur
800 gr nautahakk
3 egg
1 og 1/2 dl fetaostur
1 dl rifinn parmesanostur
1 – 1 1/3 dl mjólk
4 brauðsneiðar
1 laukur
fersk basilíka (sirka 10 stilkar)
2 og 1/2 tsk chilimauk
1 og 1/2 msk pizzakrydd
1 msk Season All
2-3 tsk nautakraftur
sjávarsalt
svartur pipar
- Setjið nautahakk og egg í hrærivélarskál. Myljið fetaost örlítið með gaffli og setjið í skálina ásamt parmesanosti.
- Rífið brauðsneiðar og vætið með mjólk þannig að brauðið drekki mjólkina í sig.
- Fínsaxið lauk, hvítlauksrif og basiliku og bætið í skálina ásamt mjólkurblautu brauðinu.
- Kryddið með chilimauki, pizzakryddi, Season All, nautakrafti, sjávarsalti og svörtum pipar. Ég nota nautakraft í duftformi frá Oscar.
- Hrærið kjötbollurnar á vægum hraða þar til allt hefur blandast vel saman.
- Mótið hakkblönduna í hæfilega stórar bollur og raðið þeim á bökunarpappírsklædda ofnplötu.
- Eldið kjötbollurnar í ofni við 180° í 20-25 mínútur á meðan sósan er löguð.
Rjómatómatsósa
2 msk smjör
1 askja piccolotómatar
2 hvítlauksrif
450 ml rjómi
3 dl vatn
3 msk tómatpúrra
1-2 tsk nautakraftur
sjávarsalt
svartur pipar
Maizena sósujafnari
handfylli fersk basilíka
- Skerið piccolotómata í fernt og pressið hvítlauksrif. Setjið í stóran pott og steikið með smjöri í 2-3 mínútur.
- Hellið rjóma og vatni í pottinn og hitið að suðu. Bætið við tómatpúrru og nautakrafti og smakkið sósuna til með sjávarsalti og svörtum pipar.
- Þykkið sósuna með sósujafnara og látið krauma við vægan hita í um 10 mínútur.
- Þegar kjötbollurnar eru tilbúnar er þeim bætt við sósuna í pottinum. Fínsaxið basiliku og hrærið saman við kjötbollurnar og sósuna. Berið fram með hrísgrjónum og ef til vill heimagerðu hvítlauksbrauði.
Sjá einnig: Syndsamlega góðar kjötbollur í kókoskarrýsósu – Uppskrift
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.