Þetta serum er eiginlega alveg dásamlegt. Og ódýrt miðað við önnur efni af svipuðum toga. Gosh Growth Serum er bæði fyrir augnhár og augabrúnir. Því er ætlað að þétta hárin og örva vöxt þeirra.
Sjá einnig: Sumarlegir og gullfallegir augnskuggapennar frá Gosh
Fyrir lengri og þéttari augnhár er formúlan sett við rót augnhára bæði kvölds og morgna. Gosh Growth Serum er með örfínum pensli þannig að þetta er hið minnsta mál – bara eins og að setja á sig eye-liner (þar sem engar áhyggjur þarf að hafa af útkomunni af því að formúlan er jú glær).
Eins er hægt að nota serum-ið til þess að þétta augabrúnirnar og fá svolítinn vöxt í þær. Ég smyr þessu í mínar áður en ég fer að sofa en fyrir sem bestan árangur er ráðlagt að gera það bæði kvölds og morgna.
Ég hef notað serum-ið í góðar fjórar vikur núna, án hlés. Ég sé tölvuverðan mun á báðum svæðum. Augabrúnirnar hafa tekið vaxtarkipp og augnhárin eru talsvert þéttari en áður.
Mæli með þessu!
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.