Þessi uppskrift kemur frá CafeSigrún. Einföld og holl!
Fyrir 2-3
- 1 sæt kartafla, afhýdd og söxuð frekar gróft
- 1 laukur, saxaður frekar smátt
- 2-5 msk grænt, thailenskt karrímauk (magn fer eftir styrkleika mauksins sem og smekk ykkar)
- 1 tsk kókosolía
- Hálf rauð paprika, sneidd í grófa strimla
- 4 portabella sveppir, saxaðir frekar gróft
- 6 þurrkuð kaffir lime blöð (má sleppa)
- 250 ml vatn
- 1 gerlaus grænmetisteningur
- 400 ml kókosmjólk
- 2 tsk agavesíróp
- 2 msk límónusafi
- Rifinn börkur af einni límónu
Aðferð
- Afhýðið laukinn og saxið frekar smátt.
- Skrælið sætu kartöfluna og saxið frekar gróft.
- Hitið kókosolíuna í stórum potti.
- Bætið lauknum út í pottinn ásamt karrímaukinu. Byrjið á 2 msk því karrímauk getur verið afar, afar sterkt.
- Bætið vatninu og grænmetisteningnum út í.
- Saxið sveppina frekar gróft.
- Skerið paprikuna í helming, fræhreinsið og saxið í grófa strimla.
- Bætið sveppunum og paprikunni við og sjóðið í 5 mínútur eða þangað til grænmetið fer að linast.
- Hrærið vel í þessu til að grænmetisteningurinn leysist upp.
- Hellið kókosmjólkinni út í og lækkið hitann. Látið malla í 5 mínútur.
- Bætið lime blöðunum út í ásamt sætu kartöflunni, látið malla í 10 mínútur eða þangað til kartöflubitarnir eru orðnir mjúkir.
- Rífið límónubörkinn fínt.
- Bætið agavesírópinu, límónusafanum og berkinum út í súpuna.
- Smakkið til með meira karrímauki.
- Hitið vel og berið fram.
- Berið fram með hýðishrísgrjónum eða byggi.
Gott að hafa í huga
- Einnig er gott að sjóða t.d. hrísgrjóna- eða sobanúðlur (úr bókhveiti) og setja út í. Setjið þær þá út í allra síðast, rétt áður en maturinn er borinn fram.
- Í staðinn fyrir portabello sveppi má nota aðra stóra sveppi.
- Í staðinn fyrir sveppi má nota eggaldin (enska: eggplant/aubergine).
- Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún verður fljótandi.
- Nota má aðra olíu en kókosolíu, t.d. vínberjakjarnaolíu eða repjuolíu.
- Gerlausir grænmetisteningar fást í heilsubúðum og stærri matvöruverslunum.
- Ef þið eruð ekki viðkvæm fyrir geri getið þið notað venjulega, lífrænt framleidda grænmetisteninga.
- Ef afgangur er af kókosmjólkinni má frysta hana í ísmolabox og nota síðar, t.d. í svona súpur.
Birt með góðfúslegu leyfi Café Sigrún.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.