Alltaf svo gott að fá sér fisk eftir helgina. Prófið þessa frá Ljúfmeti.com
Gratineraður fiskur á hrísgrjónabeði
- hrísgrjón (ég sauð 1 1/2 bolla fyrir okkur átvöglin)
- þorskur eða ýsa (ég var með 1 kg)
- töfrakrydd (má sleppa)
- 2,5 dl rjómi
- 3 msk majónes
- 2 tsk dijon sinnep
- 2 tsk karrý
- 50-100 gr ferskrifinn parmesan
- rauð paprika
- 1/2 blaðlaukur
- 200 gr rifinn ostur
Hitið ofninn í 180°. Sjóðið hrísgrjón og leggið í botninn á eldföstu móti. Skerið fiskinn í sneiðar, leggið yfir hrísgrjónin og kryddið með salti, pipar og því sem þykir gott (ég notaði töfrakrydd frá Pottagöldrum). Hrærið saman rjóma, majónesi, sinnepi, karrý og parmesan. Smakkið til og saltið og piprið. Hellið sósunni yfir fiskinn og stráið fínskorinni papriku og blaðlauk yfir. Setjið að lokum rifinn ost yfir og bakið í ca 30 mínútur.