Frábær plokkfisks uppskrift frá Elhússögur.com. Tilvalin á mánudögum.
Uppskrift fyrir ca 3:
- 1/2 laukur, smátt saxaður
- 50 gr smjör
- 1/2 -1 dl hveiti
- 500 gr kartöflur, soðnar
- 500 gr þorskur eða ýsa, soðinn
- ca 4 dl mjólk og fiskisoð
- rifinn ostur
- salt
- pipar
- Nóg af rúgbrauði og smjöri!
Ofn hitaður í 200 gráður. Kartöflur soðnar, að því loknu eruð þær flysjaðar. Vatn soðið í stórum potti, salti og pipar (svartur) bætt út í þegar suðan kemur upp. Þá er fisknum bætt út í vatnið, lok sett yfir og potturinn tekinn af hellunni. Fiskurinn veiddur upp úr eftir 5-6 mínútur. Soðið geymt. Smjör og laukur sett í pott og látið malla í smá stund, salt og pipar bætt út í. Hveiti hrært saman við og þynnt með mjólk og fiskisoði (ég nota ca. 1/3 fiskisoð, 2/3 mjólk). Þegar jafningurinn er hæfilega þykkur er fisk og kartöflum bætt út í (líka hægt að bera kartöflurnar fram sér og sleppa því að bæta þeim út í plokkfiskinn) og hrært lauslega saman. Kryddað með salti og vel af hvítum pipar. Á þessum tímapunkti er hægt að bera fram plokkfiskinn en það er gott að baka hann í smástund í ofni með rifnum osti. Þá er plokkfisknum hellt í eldfast mót og rifnum osti dreift yfir. Bakað í ofni þar til osturinn hefur bráðnað, í ca. 15 mínútur. Borið fram með rúgbrauði og smjöri.