Ótrúlega góðir kartöflubátar sem koma frá Café Sigrún.
Grillaðir kartöflubátar með guacamole og salsa
Fyrir 2 sem forréttur
Innihald
- 2 x 150 g kartöflur (helst bökunarkartöflur)
- 1 tsk kókosolía blandað saman við 1 tsk vatn
- 1 tsk salt (Himalaya eða sjávarsalt)
Aðferð
- Bakið kartöflurnar á bökunarpappír (án þess að skera þær neitt, bara eins og þær koma úr jörðinni) við 180-200°C í 45-60 mínútur.
- Takið kartöflurnar úr ofninum, kælið í 5 mínútur og skerið þær MJÖG varlega í báta með beittum hnífi. Passið ykkur því þær eru MJÖG heitar og hýðið vill brotna.
- Hreinsið allt nema um 5 millimetra af kartöflukjötinu innan úr.
- Leggið bátana (hýðismegin) niður.
- Penslið bátana með kókosolíu.
- Saltið og piprið (eða kryddið með öðru kryddi sem ykkur finnst gott).
- Bakið í 20 mínútur til viðbótar eða þangað til kartöfluhýðin eru farin að dökkna mikið á endunum (og næstum því brenna).
- Berið fram með guacamole og salsa.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.