Grillaðar kjúklingabringur, marineraðar í hunangi og balsam ediki, með rauðlauk og plómum sem er hið besta meðlæti! Algjört hunang!
Með kjúklingnum er gott aða bera fram grænt salat og hvítlauksbrauð.
Fyrir 2
Efni :
• 2 kjúklingabringur
• 1/4 bolli + 1matsk. balsam edik (ekki hellt saman)
• 2 matsk. ólívuoliía
• 1 matsk.+ 2 tsk. hunang (í sitt hvoru lagi)
• 1 tsk. hvítlauksduft
• 1/4 tsk. gróft salt
• 1/4 tsk. svartur pipar
• 2 plómur, skornar í tvennt og steinninn tekinn úr
• 1 stór rauðlaukur, skorinn í fernt
Aðferð:
Látið bringur, edik, olíu, 1matsk. hunang, hvítlauksduft, salt og pipar í plastpoka, hreyfið til og látið blandast vel, geymið í ísskáp 1-4 tíma.
Hitið grillið (frekar vel) og látið kjúklinginn steikjast 5-6 mín. Snúið þá bringunum og steikið til viðbótar í 4-6 mín. Setjið kjötið til hliðar.
Berið olíu á laukinn og plómurnar og grillið í u.þ.b. 10 mín. (5 á hvorri hlið).
Takið lauk og plómur af grillinu, setjið 2 plómubita og helminginn af lauknum ásamt 2 tsk. af hunangi, 1 msk. balsam ediki og örlitlu salti í blandara og maukið. Berið fram með kjúklingnum og plómunum og lauknum. Svo er bara að njóta í góðum félagsskap