Þetta dýrindis brauð er frá matarbloggi Önnu Bjarkar. Svakalega gott!
Grillbrauð með basil og rauðu pestó
Á ca. 2 snittubrauð
1 dl ólívuolía
1 msk. rauðvínsedik
2 msk. rautt pestó
2 msk.saxað ferskt basil
2 frosin hálfbökuð snittubrauð
Brauðið er afþýtt og klofið eftir endilöngu. Öllu í kryddolíuna er blandað saman. Það er hægt að gera þetta nokkrum dögum áður en þú ætlað að nota löginn og geyma hann svo í ísskápnum. Kryddolíunni er svo dreift jafnt út á brauðhelmingana með skeið. Þeir eru svo grillaðir á heitu grillinu, fyrst á ósmurðu hliðinni þar til hún er ljósbrún og fallega ristuð síðan er henni snúið og ristuð í augnablik á olíubornu hliðinni. Passa sig að brenna brauðið ekki. Brauðhelmingarnir eru svo skornir í hæfilega bita.
Endilega smellið like-i á Facebook síðu Önnu Bjarkar
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.