Tónlistarkonan Guðný María Arnþórsdóttir syngur hér og rappar fyrir konur, aðspurð segist hún vilja vekja athygli á því sem að vantar uppá í dag en ekki því sem að búið er.
,,þú tekur eftir að í rappinu er ég að syngja til konu. Stundum finnst mér að “gamaldags” konur standi mest fyrir okkur, eins og sagt er um svertingja, þeim finnst þeir sjálfir svartir, margir og margar konur eru haldnar kvenfyrirlitningu og fordómum til okkar. Við stelpurnar viljum flestar hafa gaman – ég líka.”
Anna Karen er tveggja barna móðir búsett í höfuðborginni. Hún er mikill húmoristi og elskar allt sem má kalla „tabú“.
Anna er mjög ofvirk og gleymin en er með hjartað um það bil á réttum stað. Jákvæðni og gleði er það sem hún vill deila til allra þeirra sem lesa greinarnar hennar ásamt því að markmið hennar er að taka þátt í að stuðla að bættri líkamsímynd og betra sjálfstrausti í samfélaginu.
„Að sýna hlýju, þolinmæði og skilning er með því dýrmætasta sem við getum gefið. En aðeins ef við getum gefið okkur það sjálf“- AKS