Innihald
- 120 g gulrætur, skrældar og rifnar á rifjárni
- 25 g pecanhnetur, saxaðar smátt
- 10 döðlur, saxaðar smátt
- 40 g rúsínur, saxaðar smátt
- 380 g spelti
- 2 msk vínsteinslyftiduft
- 0,5 tsk cardimommur (eða kanill)
- 1 msk kókosolía
- 125 ml stappaðir bananar
- 3 msk hreint hlynsíróp (eða agavesíróp)
- 190 ml súrmjólk eða AB mjólk
Aðferð
- Skrælið gulræturnar og rífið á rifjárni.
- Saxið pecanhnetur, döðlur og rúsínur fremar smátt og .
- Sigtið saman í stóra skál: Spelti, cardimommum og lyftidufti. Hrærið aðeins. Blandið rifnu gulrótunum, hnetum, döðlum og rúsínum saman við og hrærið vel.
- Afhýðið bananana og stappið þá vel. Setjið í miðlungsstóra skál og bætið hlynsírópi, súrmjólk og kókosolíu saman við. Hellið varlega út í stóru skálina.
- Blandið öllu vel saman og hnoðið í smá stund þangað til deigið er orðið þétt og mjúkt. Notið spelti ef þarf, til að deigið klessist ekki við borðið.
- Stráið spelti á borð og hnoðið þangað til að deigið er orðið útflatt og um 2 sm á hæð (þ.e. á þykkt).
- Notið glas um 3-4 sm í þvermál og með skörpum brúnum, til að skera út skonsur í deigið.
- Þegar þið eruð búin að búa til eins margar skonsur og þið getið í fyrsta kasti, þá skuluð þið hnoða deigið saman aftur og endurtaka leikinn þangað til allt deigið er búið. Gætið þess að deigið sé alltaf eins á þykkt.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu og raðið skonsunum á plötuna.
- Dreifið svolitlu spelti yfir skonsurnar (má sleppa).
- Bakið við 200°C í um 15-20 mínútur á um 200°C.
Smellið einu like-i á Café Sigrún á Facebook.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.