Gwyneth Paltrow (42) er einhleyp og á tvö börn, Apple (11) og Moses (9). Sérfræðingar vilja nú meina að stjarnan hafi farið í lýtaaðgerðir til að halda í æskublóma sinn.
Sjá einnig: Gwyneth Paltrow kaupir strippbúllu
RadarOnline.com birti þessar myndir á síðu sinni til að sanna mál sitt. Myndin hér að ofan var tekin 21. maí þegar Gwyneth fór út með vinum sínum í New York.
Samkvæmt lýtalækninum Tony Youn er andlit Gwyneth mýkra og unglegra en áður.
Sjá einnig: Martha Stewart segir Gwyneth Paltrow að halda kjafti
„Mig grunar að Gwyneth hafi farið í nokkrar litlar aðgerðir og andlitslyftingar hjá lýtalækni,“ segir Tony Youn í samtali við RadarOnline.
„Það er meiri fylling í vörum hennar og það lítur út fyrir að hún hafi látið fylla í þær,“ segir Tony.
Sjá einnig: Gwyneth Paltrow og Chris Martin enda hjónaband sitt
Tony segir að allar hrukkur Gwyneth séu grynnri og hún líti bara ofsalega vel út.