Gwyneth Paltrow(43) skellti sér í rómantískt frí til Mexíkó með kærasta sínum sjónvarpsþáttaframleiðandanum Brad Falchuk(44). Parið opinberaði samband sitt í september, rétt áður en Gwyneth mætti á frumsýningu þáttar hans Scream Queens.
Sjá einnig: Gwyneth búin að fara í lýtaaðgerðir
Brad, sem framleiðir einnig American Horror Story og Glee, var kampakátur með kærustu sinni á ströndinni í Mexíkó, enda kærasta hans glæsileg. Gwyneth hefur oft lýst yfir heilbrigðum lífstíl og í nýlega sagði hún á lífstílsheimasíðunni Goop að árið 2016 ætlaði hún að taka glúten, mjólkurvörur, rautt kjöt, soja, koffín, áfengi, skelfisk, hvít hrísgrjón og viðbættan sykur alfarið út úr mataræði sínu.
Sjá einnig: Gwyneth Paltrow kaupir strippbúllu
Sjá einnig: Þvílíkt rugl: Gwyneth Palthrow rúllar upp Nicki Minaj og Drake
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.