Körfuknattleiksmaðurinn James Harden(26) sagði Khloe Kardashian(31) víst upp yfir hátíðirnar samkvæmt miðlum vestanhafs. Talið er að James hafi sagt Khloe upp vegna of mikillar dramatíkur sem einkenndi samband þeirra og hafa þau tvö ekki sést saman frá því 8. nóvember.
Sjá einnig: Khloe Kardashian segist stunda fjölkvæni
James sagði Khloe upp á jóladag, því að ástandið var að ganga frá honum og hann sagði raunveruleikastjörnunni að þau gætu enn hist en að eitthvað alvarlegra en það væri ekki á borðinu. Eftir sambandsslitin hefur Khloe birt myndir af sjálfshjálparbókum á heimasíðu sinni khloewithak.com.
Sjá einnig: Eldheitar myndir úr jólaboði Kris Jenner
Er hún í leit að sáluhjálp? Khloe birti myndir af bókum á heimasíðu sinni eftir sambandsslitin.
Sjá einnig: Glitrandi afturendi Khloe Kardashian
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.