Ofurfyrirsætan Milla Jovovich verður í febrúar tölublaði Vogue í þessum flotta tískuþætti. Eins og glöggir lesendur eflaust sjá eru myndirnar teknar í New York og klæðist skvísan fötum frá Prada, Nina Ricci, Alexander McQueen og Dolce & Gabbana svo einhverjir séu nefndir.
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.