Samkvæmt dv.is óskar rannsóknardeild lögreglunnar á Akranesi nú eftir upplýsingum um ferðamanninn sem fannst látinn í Dritvík á Snæfellsnesi þann 28. mars síðastliðinn. Talið er að hinn látni sé franskur og hafi dvalið á landinu í um það bil mánuð.
Þeir sem geta gefið upplýsingar sem hjálpa til við að bera kennsl á manninn hafi samband við Lögregluna á Akranesi í síma 444-0111.