Ég átti hakk inni í ísskáp sem ég varð að gera eitthvað úr. Ég var ekki í stuði fyrir hakkrétt á pönnu eða ofnrétt úr hakki. Ég ákvað því að vera svolítið gamaldags og skella í hakkabuff. Þegar ég geri hakkabuff þá er sko alltaf vel af lauk og góðum osti í þeim því flöt og bragðlaus hakkabuff gera lítið fyrir mína bragðlauka. Útkoman: Algjört sælgæti!
350 gr. nautahakk
70 gr. gráðaostur
1 venjulegur laukur
2 hvítlauksrif
1 egg
2 msk Dijon sinnep
Salt og pipar
Fyrir hneturaspið:
Möndlumjöl eða gróft saxaðar möndlur
1 egg
Spelt
Aðferð
1.Pressið hvítlaukinn og saxið laukinn mjög smátt. Einnig er hægt að setja laukinn í matvinnsluvél ef þið viljið fá hann ennþá fínni.
2.Blandið hakki, gráðaosti, lauk, hvítlauk, eggi, sinnepi, salti og pipar saman í skál. Mér finnst gott að nota hrærivél í það verk.
3.Brjótið egg í eina skál, látið möndlumjöl í aðra og spelt í þá þriðju.
4.Mótið 7-8 hakkabuff úr hakkblöndunni. Veltið hverju buffi fyrst upp úr spelti, þá eggi og loks möndlumjöli.
5.Hitið olíu á pönnu. Steikið buffin á vel heitri pönnunni þar til þau hafa fengið flottan lit á báðum hliðum.
6.Færið buffin í eldfast mót og bakið við 175 gráður í 12-15 mínútur eða þar til buffin eru orðin vel steikt og flott í gegn.
Gott er að spæla egg, sjóða eða baka kartöflur og bjóða upp á brúna sósu og salat!
Birna er tvítug Reykjavíkurmær. Hún er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á mataræði og heilbrigðum lífsstíl. Birna stundar Boot Camp, hlaup og lyftingar af kappi. Hún er dugleg að takast á við krefjandi áskoranir og leika lausum hala utan þægindarammans. Hvort sem það er utanvegahlaup, kraftlyftingar, þrekkeppnir eða annað í þeim dúr. Birna mun deila uppskriftum úr eigin tilraunaeldhúsi með lesendum Hún.is ásamt því að skrifa skemmtilega og upplífgandi pistla er snúa að heilbrigðum lífsstíl og sjálfsrækt.