Halle Berry ófrísk að sínu öðru barni

Leikkonan fagra Halle Berry er ófrísk en þetta er fyrsta barn hennar og Olivier Martinez unnusta hennar. Fyrir á hún 5 ára dóttur með sínum fyrrverandi eiginmanni Gabriel Aubry en þau hafa staðið í forræðisdeilu frá því þau skildu árið 2010.

Fjölmiðlafulltrúi tilkynnti þetta í gær en Halle Berry sem er 46 ára og Olivier Martinez sem er 47 ára ætla ekki að greina frá neinum smáatriðum um þetta að svo stöddu.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here