Hin 19 ára gamla Kendra Sunderland var handtekin á síðasta fimmtudag. En Kendra er fyrrum nemandi við háskóla í Oregon-fylki og er henni gefið að sök að hafa tekið upp 20 mínútur af klámfengnu efni á bókasafni skólans. Á opnunartíma, nota bene. Að kvikmynda klámfengið efni á almannafæri er með öllu ólöglegt í fylkinu. Eins og svo víða annarsstaðar.
Þessum ósæmilegu gjörðum Kendru var hlaðið inn á PornHub (klámsíða sem er í 72.sæti yfir vinsælustu vefsíður veraldar), þar sem það fékk yfir 260 þúsund heimsóknir, áður en Sunderland var gómuð fyrir uppátækið og myndbandið fjarlægt.
Sunderland á væna sekt yfir höfði sér. Og mögulega heilt ár í fangelsi.
Það er vissara að taka klámið bara upp heima. Horfa svo á það einsamall.
Tengdar greinar:
13 atriði sem eiga aðeins við í klámmyndum
27 þekktar klámstjörnur án andlitsfarða
Ungt fólk er háð klámi – Heimildarmynd
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.