Sérhvert barn er kraftaverk og það orð á vissulega við um son redditsnotandans Tcordolino, en hann fæddist 4 mánuðum fyrir tímann eftir aðeins 24 vikna og 2 daga meðgöngu. Hann vóg aðeins 750 grömm.
Pabbi hans fékk að halda á honum í fyrsta skipti viku eftir að hann fæddist. Eins og þið sjáið er hendin
á honum jafnstór nögl pabbans.
Eftir 130 daga á vökudeild fékk hann loksins að fara heim orðinn tæp 4 kg. Þessi mynd er tekin daginn
eftir að hann kom heim. Stóra systir hans gjörsamlega dýrkar hann.
Og hérna eru myndir af honum teknar í byrjun ársins 2014, er hann ekki yndislegur?
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.