Topher Brophy og hundurinn hans Rosenberg hafa vakið athygli á Instagram undanfarið. Topher segir að þeir séu svo líkir og gera allt saman, svo þeim finnst bara eðlilegt að klæða sig í stíl.
Sjá einnig:Hundurinn fær ofursúrt nammi
Þeir hafa svipuð einkenni, hár, augnlit og kallar Tophy hundinn sinn, Rosenberg, son sinn. Rosenberg er hálfur púðluhundur og hálfur ástralskur shepard hundur og birtast myndir af þeim á Instagram undir @thedogstyler. Myndirnar tekur Chantal Adair og vilja Topher og Rosenberg einna mest gleðja fólk og færa bros á andlit þeirra.
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.