Albert Pocej hefur verið ljósmyndari í 10 ár og var þetta verkefni eitt af hans persónulegu hugmyndum. Aðspurður segist hann hafa vaknað einn morguninn og vitað að hann þyrfti hreinlega að láta verða að svona verkefni.
Sjá einnig: 16 seiðandi staðreyndir um fullnægingar
Hann vildi mynda konur á hæsta punkti fullnægingar og þar með rannsaka kvenkyns fullnægingar. Hann hélt fyrst um sinn að það myndi vera nær ómögulegt að að fá módel í myndatökuna, en fór þó af stað og skrifaði til allra þeirra kvenna sem hann þekkti. Svörin sem hann fékk voru annað hvort “ég þori því ekki” eða ekkert svar, sem honum fannst vera það sama og neitun. Það sem uppi stóð voru 20 konur, sem voru tilbúnar að taka þátt í verkefninu, en sumar þeirra hættu við þegar þær vissu nákvæmlega það sem þær þurftu að gera og þar með að mega ekki gera sér upp fullnæginguna.
Sumar myndanna eru teknar af honum sjálfum á staðnum og aðrar voru teknar með tímastilltri myndavél. Hann vildi ekki að þær væru að leika og þar með algjör klisja, heldur raunveruleg fullnæging.
Sjá einnig:Hvernig fá konur fullnægingu?
Heimildir: Bored Panda