Ef þú skilur hundinn þinn eftir heima getur það verið ákveðinn áhætta. Þessi Husky sýndi það allavega þegar eigendur hans fóru í bíó og voru fjarverandi í þrjár klukkustundir. Þegar þau komu heim voru svört hundaspor út um allt hús.
Sagt var frá þessu á DailyMail en voffinn var mjög skömmustulegur þegar þau komu svo öll heim. Hann hafði komist í blek og var búinn að stimpla nánast ALLT gólfið í húsinu.
Eigendur hundsins settu myndirnar af þessu stórslysi inn á Imgur en þar hafa þær verið skoðaðar yfir 300.000 sinnum.
Sjá einnig: Husky sem syngur í sturtu
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.