Það er ekki erfitt að búa sér til sitt eigið sérhannaða símahulstur, sem hentar þínum einstaka persónuleika. Einfaldlega vertu þér úti um hvítt eða einlitt hulstur, föndraðu og leyfðu hugmyndafluginu að leika lausum hala. Það er bókað mál að enginn á eins síma og þú. Hér eru nokkrar hugmyndir sem gætu komið þér af stað:
1. Glimmer draumur. Hvort sem það er naglalakk eða laust glimmer og lím, þá er þetta glimmrandi flott.
2. Perlur, steinar og rósir. Fallegasti sími sem fyrir finnst.
3. Þú verður með augun alls staðar!
4. Fyrir þau sem elska sjómannsífið og þrá að komast í siglingu um miðjarðarhafið.
5. Þig mun aldrei vanta hnapp í gatið.
6. Pallíettu hönnun eftir eigin smekk.
7. Það geta allir vippað í hulstur til að vernda símann sinn. Saumaðu eitthvað fallegt.
8. Upp! Ævintýri gleðja augað.
9. Tússaðu með varanlegum tússi og síminn verður í sínu fínasta pússi!
10. Allt sem er fallegt getur verið á símanum þínum. Efni, veggfóður eða límmiðar!
11. Límdu á hann töffaralegt skraut, töffarinn þinn!
12. Dáleiðandi litadýrð! Sími þinn verður sá fegursti!
13. Það er allt hægt! Naglalakk, túss og hvaðeina sem til þarf.
14. Hvað sem þig langar, getur verið á símanum þínum. Uppáhalds!
15. Elfaldara en þig grunar! Límmiðar, límband, naglalakk og hvaðeina.
Sjá einnig: Svona býrðu til símahulstur úr blöðru
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.