Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í 20. sinn kvöldið í gærkvöldi í Hörpu. Verðlaunaafhendingin var einstaklega hátíðleg vegna afmælisins og var stiklað á sögu hátíðinnar í dagskrá kvöldsins.
Marg var um manninn og það voru fáir tónlistarmenn sem létu ekki sjá sig í Hörpu. Kynnir kvöldsins var Villi naglbítur og hélt hann stuðinu upp af sinni alkunnu snilld.
Úrslit kvöldsins voru eftirfarandi:
Plata ársins (popp og rokk) Mammút
Plata ársins (djass og blús) K-tríó
Plata ársins (sígild- og samtímatónlist) Over light earth með Daníel Bjarnasyni
Plata ársins í opnum flokki Days of gray með Hjaltalín
CocaCola plata ársins Grísalappalísa
Söngvari ársins John Grant
Söngkona ársins Sigríður Thorlacius
Bjartasta vonin (poppi, rokki og blús) Kaleo
Bjartasta vonin (Sígild og samtímatónlist og Jazz) Fjölnir Ólafsson
Textahöfundur ársins Bragi Valdimar Skúlason
Lagahöfundur ársins John Grant
Tónverk ársins (Djass og blús) Strokkur af plötunni Meatball Evening – Kristján Tryggvi Martinsson
Tónverk ársins (Sígild og samtímatónlist) Nostalgia Páll Ragnar Pálsson
Upptökustjóri ársins Sveinn Helgi Halldórsson Fyrir stjórn upptöku á Enter 4 með Hjaltalín
Tónlistarviðburður ársins Gunnar Þórðarson og Friðrik Erlingsson – Ragnheiður, ópera
Plötuumslag ársins Mammút Komdu til mín svarta systir Hönnun: Alexandra Baldursdóttir, Katrína Mogensen, Sunneva Ása Weisshappel
Söngvari ársins (Sígild og samtímatónlist) Ágúst Ólafsson
Söngkona ársins (Sígild og samtímatónlist) Hallveig Rúnarsdóttir
Tónlistarflytjandi ársins (Djass og blús) Sigurður Flosason
Tónlistarflytjandi ársins (Popp og rokk) Skálmöld
Tónlistarflytjandi ársins (Sígild og samtímatónlist) Nordic Affect
Tónlistarmyndband ársins Grísalappalísa Hver er ég? í leikstjórn Sigurðar Möller Sívertsens
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.