![haust-8019[378]](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2017/03/haust-8019378.jpg)
Haust Restaurant á Fosshótel Reykjavík er einn af mínum uppáhaldsveitingastöðum á Íslandi. Hráefnin sem eru notuð í matseldina eru þau ferskustu sem hægt er að fá og maður finnur það í hverjum munnbita. Einstakur veitingastaður í Reykjavík. Matseldin einkennist af ferskum, íslenskum hráefnum í nýjum og spennandi búningi.
Pálmi Jónsson hefur nýlega tekið við starfi yfirkokks á Haust og hefur búið til nýjan matseðil sem er svakalega vel upp settur og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Ég ólst upp í Danmörku og lærði til kokks þar. Þar skiptast veitingastaðir í tvo flokka. Það eru þeir sem kaupa fiskflök og svo hinir sem kaupa heilan fisk og nota hann allan. Það er ekkert skilið eftir,“ segir Pálmi þegar við kíktum á hann á Haust nýverið.
Pálmi segir mér að hann versli nautið beint frá býli. Hann velur sér skrokk og fær hann hálfan eða heilan og úrbeinar svo kjötið sjálfur.
![haust-8027[379]](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2017/03/haust-8027379-1024x683.jpg)
„Fiskinn fæ ég aðallega frá einum manni fyrir vestan í Ísafjarðardjúpi. Hann útvegar mér innfjarðarækjuna sem við erum með á matseðlinum.” Rækjan er veidd með gömlum aðferðum og sjómaðurinn er sá eini sem notar þessa aðferð og Haust er eini aðilinn sem verslar af þeim í dag.
![haust-8004[377]](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2017/03/haust-8004377-1024x683.jpg)
Þessi nýji matseðill er gerður úr fyrsta flokks hráefni, hvort sem það eru forréttir, aðalréttir eða eftirréttir og augljóst að mikil hugsun er á bakvið hvern rétt. Á matseðlinum er hægt að velja sér þriggja rétta matseðil sem Pálmi kallar sjóferð, vetrarferð og grænmetisferð en hann segir að hægt sé að fá alla réttina Vegan ef fólk vill.
![haust-8067[382]](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2017/03/haust-8067382-1024x683.jpg)
„Matseðillinn er árstíðabundinn og við leggjum mikla áherslu á tengingu við náttúruna og ef við getum notað íslenskt hráefni, gerum við það,“ segir Pálmi að lokum.

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.