Sigg er vörn líkamans til að sporna við þrýstingi og núningi. Algengasti staðurinn fyrir sigg að myndast er á iljunum enda mæðir oft mikið á því svæði. Sigg getur þó verið óþægilegt og algengt að fólk finni fyrir afleiðingum þess. Bæði vegna þess hve hart siggið getur orðið en einnig getur húðin orðið það þykk að á endanum þornar hún og springur. Það getur verið gott að meðhöndla fæturnar reglulega til að sporna við sigginu. Hér er ódýr, einföld og árangursrík uppskrift að góðu heimagerðu fótabaði.
Efni
Stórt fat fyrir fótabaðið
3 matskeiðar matarsódi
1 lítri heitt vatn
Nokkrir dropar af lavander olíu ef til er, má sleppa.
Skrúbbsteinn eða fótaraspur
Rakakrem
Hafðu fæturnar alveg hreinar áður en þú byrjar. Settu heitt vatnið í fatið, helltu matarsódanum út í og hrærðu í þar til blandast hefur saman. Það er yndislegt að bæta nokkrum dropum af lavender olíu út í en þó ekki nauðsynlegt. Komdu þér vel fyrir og slakaðu á með fæturnar í fatinu í 15 til 20 mínútur.
Þá skaltu taka fæturnar upp úr og raspa eða skrúbba hælana og tábergið þar sem mesta siggið er.
Ef þú ert með mikið sigg getur þú einnig búið til skrúbb, álíka þykkan og tannkrem úr matarsóda og smá vatni sem þú nuddar á sigg svæðið áður en þú raspar eða skrúbbar.
Endið meðferðina á að bera nærandi krem á fæturnar. Þú getur líka notað kókosolíu eða vaselín.
Endurtakið einu sinni í viku til að byrja með og fæturnir fá afar mjúka áferð.
Mamman er búsett í úthverfi höfuðborgarsvæðissins ásamt eiginmanni og tveimur hressum og heilbrigðum börnum. Mamman mun skrifa um ýmislegt sem við kemur börnum, s.s. uppeldi, hreyfingu, matarvenjur og fleira