Í Kaliforníu kynntist ég hressri konu á bændamarkaði sem seldi svona líka rosalega gott granola í pokum. Ég fór nokkra sunnudaga í röð og keypti granola hjá henni en ákvað svo að reyna að búa til mína eigin uppskrift.
Þetta granola á ég núna alltaf til heima hjá mér og get gripið í það ef nasl þörfin knýr dyra eða ef mig langar í eitthvað gott með skyrinu eða jógúrtinu mínu.
Er svo lánsöm að það fæst graskersmauk og pumpkin pie spice hér á landi.
300 grömm grófir hafrar
40 grömm kókosflögur
80 grömm sólblómafræ
1 dl hnetublanda (ég notaði saxaðar valhnetur og möndlur)
2 tsk kanill
1 tsk pumpkin pie spice
1/8 tsk salt
2 eggjahvítur
2 dl niðursoðið grasker / graskersmauk
¾ dl hunang
½ dl kókosolía eða vegetable oil (meira ef þið teljið þurfa)
2 msk hrásykur
1 tsk vanilludropar
trönuber og döðlur
Aðferð
Hitið ofninn í 150 gráður. Hrærið saman höfrum, kókosmjöli, sólblómafræjum, hnetum, kanil, pumpkin pie spice og salti í stórri skál. Látið til hliðar.
Þeytið eggjahvítur í hrærivél í um það bil 60 sekúndur. Bætið graskersmaukinu, hunanginu, bræddri kókosolíunni, hrásykrinum og vanilludropunum við þar til allt hefur blandast vel. Hellið blöndunni yfir þurrefnin og hrærið allt vel saman. Dreifið blöndunni á bökunarpappír á tveimur plötum. Hafið lagið ekki of þykkt og ekki of þunnt. Bakið í 30-40 mínútur. Fylgist vel með og hrærið í á 10-15 mín fresti til að koma í veg fyrir að granolað brenni. Takið herlegheitin út úr ofninum og látið standa í 20 mín til að leyfa þessu að storkna. Saxið döðlur og blandið við granola í stórri skál ásamt trönuberjum eða rúsínum.
Geymið í lokuðum/loftþéttum umbúðum í allt að 2 vikur. Svo er bara spurning hvort þetta endist svo lengi.
Höfundur: Birna Varðar.
Birna er tvítug Reykjavíkurmær. Hún er stúdent frá Verzlunarskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á mataræði og heilbrigðum lífsstíl. Birna stundar Boot Camp, hlaup og lyftingar af kappi. Hún er dugleg að takast á við krefjandi áskoranir og leika lausum hala utan þægindarammans. Hvort sem það er utanvegahlaup, kraftlyftingar, þrekkeppnir eða annað í þeim dúr. Birna mun deila uppskriftum úr eigin tilraunaeldhúsi með lesendum Hún.is ásamt því að skrifa skemmtilega og upplífgandi pistla er snúa að heilbrigðum lífsstíl og sjálfsrækt.