Gisele Bundchen og maðurinn hennar Tom Brady eru búin að koma sér fyrir á fallegu heimili í Los Angeles. Architectural Digest fékk að kíkja inn á heimili þeirra og er það ekki af verri endanum. Þau tóku húsið í gegn og hafa byggt það upp á mjög svo fallegan og notanlegan hátt. Gisele alþjóðlegur sendiherra umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna, svo að finna leiðir til að spara orku og finna vistvænar lausnir á heimili þeirra var hennar hjartans mál. Þau fengu arkitektinn Richard Landry og innanhúshönnuðinn Joan Behnke með sér í lið og er útkoman hin glæsilegasta.