Þessi glæsilega fasteign er samþykkt fyrir blandaða starfsemi og skráð sem íbúð/vinnustofa. Í íbúðinni eru 4 herbergi, þar af er eitt svefnherbergi og stór stofa og fremri hluti hennar er nýttur sem vinnustofa og verslunar/ sýningarrými með salernisaðstöðu.
Gengið er inn í anddyri húsnæðisins af skjólgóðum svölum og þaðan er gengið inn í tvö rúmgóð ca. 20 fm herbergi. Annað herbergið er afmarkað með stórum rennihurðum og hefur að geyma mjög gott skápapláss og sér baðherbergi en hitt herbergið er sem stendur notað sem vinnustofa og þar er að finna rennandi vatn og tilheyrandi innréttingar. Bæði þessi rými er auðveldlega hægt að nýta sem rúmgóð svefnherbergi.
Sérsmíðuð innrétting er í eldhúsi og það er stórgott skápa- og borðpláss eins og sjá má.
Á baðherberginu eru fallegar flísar sem gefa því hlýjan tón og það er bæði baðkar og sturta og svo skemmir ekki fyrir að það er hiti í gólfinu. Af baðherberginu er svo gengið inn í þvottahús.
Yfir íbúðinni er einangrað háloft sem er ekki inni í fermetrafjölda og nýtist vel sem stór geymsla.
Þetta er einstök eign þar sem engu hefur verið tilsparað við að skapa létt leika og tryggja góða nýtingu rýma. Íbúðin var endurnýjað á vandaðan hátt 2011.
Hér má sjá fleiri myndir af eigninni
Frekari upplýsingar um eignina gefa Þóra Birgis. 7772882 eða á thora@fastborg.is og Jóhanna í s. 662-1166 eða johanna@fastborg.is
Tengdar greinar:
Krúttleg lítil íbúð í miðborginni
230 fm íbúð á tveimur hæðum í Kópavogi
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.