Þetta töff, umhverfisvæna og færanlega heimiili er hannað af Ábaton hér , húsið er hentugt fyrir 2 einstaklinga, auðvelt að færa það eftir vegum og er tilbúið til að staðsetja næstum hvar sem er.
Húsið samanstendur af þremur 27 fm herbergjum: stofu/eldhúsi, baðherbergi og svefnherbergi. Lofthæð er hæst 3,5 metrar. Næstum allt byggingarefni er endurunnið og húsið fellur inn í umhverfið þökk sé opnanlegum flekum sem færa umhverfið nánast inn í stofu. Notkun viðar sem byggingarefni í gegnum allt húsið færir ró og jafnvægi og er einnig ofnæmisprófað.
Ragna er miðborgarbarn sem elti ástina til útgerðarparadísarinnar Grindavík. Þó að ástin hafi yfirgefið hana hefur hún enn óbilandi trú og áhuga á fólki, ástinni og lífinu og tilverunni.