Sögusagnir um að Ben Affleck hafi sængað hjá barnapíu þeirra hjóna fara eins og eldur um sinu þar vestra. Ben og Jennifer Garner hafa verið gift í 10 ár en sagt er að Ben sé að gera hosur sínar grænar fyrir barnapíunni þeirra, Christine Ouzonian, sem er 28 ára gömul og hefur verið að sjá um börnin þeirra þrjú.
Athygli hefur þó sérstaklega vakið að klæðaburður Christine, þykir einna líkur klæðaburði leikonunnar.
Þegar allt lék í lyndi: Ben Affleck og Jennifer Garner hafa verið gift í 10 ár en nú er samleið þeirra lokið sem hjón.
Ben og Christine, sem er barnapía þeirra hjóna.
Sjá einnig: Ben Afleck og Jennifer Garner skilin
Svo svipaður klæðaburður: Sami stíll á skonum, pilsinu og bolnum hjá Jennifer og Christine.
Jennifer á flugvellinum að sækja vinkonu sína og voru þær stöllur í góðum gír.
Óförðuð en svo falleg: Jennifer er ein af þeim stjörnum sem skína með náttúrulegt útlit sitt.
Erfiðir tímar: Mikið hefur gengið á að undanförnu hjá Jennifer en hún heldur höfðinu hátt.
Heimildir: Dailymail
Dagbjört Ósk Heimisdóttir er af Ströndum en býr í borginni ásamt sonum sínum tveimur. Dagbjört er hárgreiðslumeistari en ákvað að breyta aðeins til að gerast penni hjá Hún.is. Nú starfar hún í frábæru teymi sem skrifar á vefinn.