Þessi dýrðlega terta er úr smiðju Erlu Guðmunds – bloggara og sælkera með meiru. Að sögn Erlu er hérna um ávanabindandi gúmmelaði að ræða – þannig að þið hrærið í eitt stykki á eigin ábyrgð.
Sjá einnig: Snargeggjuð kókosbollubomba með Daimrjóma og karamellu
Það er um að gera að fylgjast með því sem Erla er að bauka á Facebook og missa aldrei af uppskrift.
Bountyskyrterta
Botn
1 – 1 og 1/2 kassi Oreokex
100 gr íslenskt smjör (við stofuhita)
- Skellið kexinu í matvinnsluvélina og setjið á fullt. Næst kemur smjörið, ég skar það niður í litla bita áður en ég setti það í matvinnsluvélina með Oreokexinu.
- Þegar kexið og smjörið hafði blandast vel saman, þá skellti ég blöndunni í kökuform og þrýsti henni vel niður. Skellið botninum inn í kæli á meðan þið gerið fyllinguna.
Fylling
250 ml rjómi
300 gr skyr.is með vanillubragði
1 tsk vanillusykur
100 gr hvítir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus (brætt)
9 litlir Bountybitar
3 kókosbollur
- Byrjið á því að þeyta rjóminn og bætið síðan skyrinu út í, hrærið varlega saman.
- Næst fer vanillusykurinn og hvíta súkkulaðið út í, blandið vel.
- Ég skar Bountybitana smátt og kókosbollurnar gróft, blandaði því svo saman við blönduna með sleikju.
- Þá er fyllinginn klár og henni skellt ofan á oreobotninn og geymd inn í kæli í nokkrar klukkustundir.
- Ég gerði kökuna að kvöldi til, svo ég geymdi kökuna í kæli yfir nótt og daginn eftir var hún orðin nógu stíf til þess að ég gæti losað hana úr forminu og skellt henni á kökudisk. Ég skreytti svo með nokkrum bræddum súkkulaðidropum frá Nóa Síríus.
Sjá einnig: Grillgott með kókosbollum og karamellum
Guðrún Veiga er fædd og uppalin á Eskifirði. Hún er mannfræðingur að mennt, mikill matgæðingur, mamma og múltítasker. Guðrún Veiga hefur skrifað fyrir hina ýmsu miðla, unnið í sjónvarpi og skrifað eitt stykki matreiðslubók.