Fréttatilkynning frá aðstandendum Hinsegin daga sem haldnir verða 6. – 11. ágúst
Á hverju sumri höldum við Hinsegin daga í Reykjavík og tileinkum hátíðina hinsegin fólki á Íslandi, baráttu þess, frumkvæði og gleði. Rekja má sögu Hinsegin daga aftur til ársins 1993 en frá árinu 1999 hafa Hinsegin dagar verið árlegur viðburður í Reykjavík.Hinsegin dagar hafa vaxið úr því að vera eins dags samkoma 1500 þátttakenda upp í það að verða sex daga mannréttinda- og menningarhátíð sem allt að 90.000 gestir hafa sótt þegar best lætur.
Í ár hefst hátíðin þriðjudaginn 6. ágúst og lýkur á sunnudeginum 11. ágúst. Dagskráin er fjölbreytt og er ætlað að heiðra mannréttindi, menningu og margbreytileika, hér heima og erlendis. Hápunktur hátíðarinnar er að sjálfsögðu gleðigangan sem ganga mun frá Vatnsmýrarvegi að Lækjartorgi laugardaginn 10. ágúst en að henni lokinni munu Hinsegin dagar í Reykjavík bjóða landsmönnum öllum til útihátíðar við Arnarhól líkt og undanfarin ár.
Allar helstu upplýsingar um Hinsegin daga má finna á: www.reykjavikpride.com. Dagskrárrit Hinsegin daga 2013 er komið í dreifingu en rafræna útgáfu ritsins má finna á: http://www.reykjavikpride.com/#!dagskrrrit/csiy
Dagskrá Hinsegin daga 2013
Þriðjudagur 6. ágúst
Klukkan 19:30, Ingólfstorg
Söguganga um hinsegin slóðir
Klukkan 21:00, Bíó Paradís
Bróðir og utangarðsmaður – Ævi Bayard Rustin
Miðvikudagur 7. ágúst
Klukkan 17:00, Norræna húsið
Hinsegin Grænland. Ljósmyndasýning
Klukkan 18:00, Norræna húsið
Þerraðu aldrei tár án hanska
Viðar Eggertsson les úr bók Jonasas Gardell
Klukkan 20:00, Gamla bíó, Ingólfsstræti
Þjóðsaga, tónverk eftir Hafstein Þórólfsson og Hannes Pál Pálsson
Fimmtudagur 8. ágúst
Klukkan 14:00, Ráðhús Reykjavíkur
Hinsegin bókmenntir. Pallborðsumræður hinsegin höfunda
Klukkan 16:00, Þjóðminjasafn Íslands
Örmyndir úr sögu hinsegin fólks á Íslandi
Klukkan 21:00, Harpa – Silfurberg
Opnunarhátíð. Ástin í aðalhlutverki í litríku sjónarspili – í tónlist, sjónlist, leiklist
Pride-partí eftir opnunarhátíðina
Föstudagur 9. ágúst
Klukkan 17:00, Ráðhús Reykjavíkur
Stefnumót við hinsegin höfunda. Upplestur og samræður
Klukkan 18:30, Gamla bíó, Ingólfsstræti
Tónleikar – Pink Singers og Hinsegin kórinn
Klukkan 21:30, Ægisgarður
Hinsegin sigling um Sundin blá
23:00, KIKI, Laugavegur 22
Landleguball
Laugardagur 10. ágúst
Klukkan 14:00, BSÍ
Gleðiganga
Safnast saman á Vatnsmýrarvegi klukkan 12. Gangan leggur af stað stundvíslega klukkan
tvö eftir Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi og Lækjargötu að Arnarhóli.
Klukkan 16:00, Arnarhóll
Hinsegin hátíð
Tónleikar og stuð með fjölmörgum af okkar vinsælustu skemmtikröftum
Klukkan 20:00, Samtökin ́78, Laugavegi 3
Ungmennapartí
Ball fyrir ungt hinsegin fólk undir tvítugu.
Klukkan 23:00, Rúbín í Öskjuhlíð
Hinsegin hátíðardansleikur
Landslið hinsegin plötusnúða og skemmtiatriði.
Sunnudagur 11. ágúst
Klukkan 11:00, Guðríðarkirkja
Guðsþjónusta.Athöfninni er útvarpað á Rás 1 ríkisútvarpsins
Klukkan 13:00, Tjarnargata 20
Hinsegin AA-fundur
Klukkan 14:30, Viðey
Regnbogahátíð fjölskyldunnar.Bátsferðir á klukkutíma fresti frá 11:15.
Klukkan 20:00, Dómkirkjan
Regnbogaguðsþjónusta í umsjá hópsins Hinsegin í Kristi.